Kettir kunna að meta eigendur sína Heimir Már Pétursson skrifar 27. júní 2013 08:16 Þó kettir þykist vart taka eftir eigendum sínum þá kunna þeir vel að meta þá.
Ný rannsókn á samskiptum katta og manna sem birt verður í næsta mánuði sýnir að kettir veita eigendum sínum sérstaka athygli og greina þá vel frá öðru fólki. Miklar rannsóknir hafa verið gerðar á hegðun hunda en litlar rannsóknir á hegðun katta sem fylgt hafa manninum í tíu þúsund ár. Rannsóknin sýnir að þótt kettir gegni sjaldan beinum skipunum eins og hundar geri og séu tamdir til, þá dái kettir eigendur sína. Þessi nýja og umfangsmikla rannsókn leiðir í ljós að samband eigenda og kattar er mjög svipað og samband manna við ungabörn og að þetta samband við eigandann sé kettinum mjög mikilvægt. Rannsóknin fór fram á heimili fjölda katta. Þeir voru meðal annars látnir hlusta á hljóðupptökur af tali fólks sem kettirnir þekktu ekki og svo tali eigenda sinna að þeim fjarstöddum. Kettirnir sýndu yfirleitt lítil sem engin viðbrögð við röddum annarra en eigenda sinna eftir að hafa vanist röddum hinna ókunnugu. En þegar þeir heyrði raddir eigendanna hreyfðu þeir bæði eyru og höfuð að þeim stað sem röddin barst frá og sjáöldur augna þeirra víkkuðu sem bendir til eftirvæntingar og þess að kettirnir séu spenntir. Þá leiðir rannsóknin í ljós að kettir reyna að fela ef þeir eru veikir eða særðir og er talið að það megi rekja til þess að í náttúrinni geti veikleikamerki reynst þeim hættulegt gagnvart öðrum rándýrum. Þess vegna sýni þeir áhugaleysi þegar þeim sé hjúkrað af eigendum sínum, eins og þeir kannist ekki við að vera veikir. Þá sé augljóst að kettir skilji eigendur sína upp að vissu marki út frá tónfalli og sömuleiðis tjái kettir sig við eigendur sína með misjöfnu tónfalli í mjálmi og mali.
Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Fleiri fréttir Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Talin hafa myrt móður sína og stjúpbróður fyrir skotárásina „Þjóðin syrgir með ykkur“ Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Sjá meira