Erlent

Drap sjö ára stúlku í sjálfsvígstilraun

Jóhannes Stefánsson skrifar
Slökkviliðsmaður kemur í veg fyrir sjálfsvíg. Mynd tengist frétt ekki beint.
Slökkviliðsmaður kemur í veg fyrir sjálfsvíg. Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd/ AFP

Sjö ára suðurkóresk stúlka lést samstundis er maður sem hafði stokkið af svölum tíundu hæðar íbúðarhúss lenti á henni. Talið er að maðurinn hafi ætlað sér að fremja sjálfsvíg, en hann lést einnig samstundis.

Stúlkan var dóttir nágranna mannsins, en maðurinn lenti á henni þegar hún var að koma út úr fjölbýlishúsinu í gærkvöldi.

Maðurinn hafði að sögn erlendra fjölmiðla lengi glímt við geðræn vandamál og þunglyndi.

Tíðni sjálfsvíga er hvergi hærri í löndum OECD en í Suður-Kóreu, en þar féllu að meðaltali 33,5 á hverja 100.000 íbúa fyrir eigin hendi árið 2010.

Sjá nánar um málið á Sydney Morning Herald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×