Erlent

Samkynhneigðir mega giftast í Minnesota

Jakob Bjarnar skrifar
Frá þinginu í Minnisota.
Frá þinginu í Minnisota.
Í gærkvöldi voru giftingar samkynhneigðra gerðar löglegar í Minnesota, eins og búist hafði verið við.

Var frumvarp þessa efnis samþykkt með 37 atkvæðum gegn 30 á öldungadeild ríkisþingsins. Fylkið varð þar með hið 12. í Bandaríkjunum sem heimilar slíkar giftingar en ríkin hafa verið að samþykkja frumvörp í þessa átt eitt af öðru að undanförnu. Giftingar samkynhneigðra eru enn bönnuð í 31 fylki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×