Ólíkar skoðanir Gylfa og Villas-Boas Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. mars 2013 09:57
Gylfi Þór Sigurðsson segir tap Tottenham gegn Fulham um helgina mega að einhverju leyti rekja til 120 mínútna leiks Spurs gegn Inter í Evrópudeildinni á fimmtudag. Gylfi segir í viðtali við Guardian að liðið hafi aldrei komist almennilega í gang gegn Fulham. Dimitar Berbatov skoraði eina markið í 1-0 sigri gegn sínum gömlu félögum. „Ég vil ekki afsaka okkur en mínúturnar 120 á fimmtudaginn spiluðu líklega þátt í þessu að viðbættu ferðalaginu. Við hefðum þó getað spilað betur þrátt fyrir þreytu," segir Gylfi sem var í byrjunarliði Spurs fimmta leikinn í röð. Andre Villas-Boas gerði fimm breytingar á byrjunarliði Spurs á milli leikjanna. Hann neitar því að leikurinn í Mílanó hafi komið niður á liðinu gegn Spurs. „Við vorum með ferska fætur á vellinum eins og allir sáu. Við hristum upp í liðinu," segir Villas-Boas. Gylfi og Moussa Dembele voru tveir þeirra fimm sem byrjuðu báða leikina. Þeir félagar spiluðu báðir 120 mínútur í Mílanó og voru fjarri sínu besta gegn Fulham líkt og flestir liðsmanna Spurs. Voru þeir báðir teknir af velli í síðari hálfleik.Chelsea gæti spilað 70 leiki Spurs á í harðri baráttu við Chelsea og Arsenal um 3. sætið í deildinni. Liðið hafnaði í 4. sæti í deildinni á síðustu leiktíð en sætið dugði ekki til þátttöku í Meistaradeildinni í ár þar sem Chelsea varð Evrópumeistari og hirti sætið af Spurs. Spurs hefur spilað 44 leiki á tímabilinu líkt og Arsenal en Chelsea er komið í 53 leiki. Spurs gæti spilað 57 leiki færi liðið alla leið í Evrópudeildinni. Chelsea gæti hins vegar farið í 70 leiki gangi allt upp í deildabikarnum og FA-bikarnum. Arsenal á hins vegar aðeins níu deildarleiki eftir og spilar því 53 leiki á tímabilinu. „Við höfum enn fulla trú á því að komast í Meistaradeildina," segir Gylfi. Spurs mætir Swansea sem Gylfi spilaði með á síðasta tímabili annan laugardag. „Við höfum sýnt á tímabilinu að við erum þess megnugir," segir Gylfi.
Enski boltinn Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Åge Hareide látinn Fótbolti Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira