Liverpool skellti Tottenham | Gylfi lék allan leikinn Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 10. mars 2013 00:01 Mynd/Nordic Photos/Getty
Liverpool sigraði Tottenham 3-2 í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Steven Gerrard tryggði Liverpool sigurinn með marki úr vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok. Luis Suarez kom Liverpool yfir 21. mínútu þegar hann afgreiddi boltann frábærlega í markið úr þröngu færi. Örfáum andartökum fyrir hálfleik jafnaði Jan Vertonghen með skalla eftir aukaspyrnu Gareth Bale. Bale átti aftur fyrirgjöfina þegar Vertonghen nýtti sér vandræði Liverpool í að hreinsa á áttundu mínútu seinni hálfleiks og Tottenham komið yfir. Stewart Downing jafnaði metin á 66. mínútu með hægri fæti eftir skelfileg mistök Hugo Lloris í marki Tottenham. Það var svo Steven Gerrard sem tryggði Liverpool sigurinn á 82. mínútu með marki úr vítaspyrnu sem dæmd var eftir að Assou-Ekotto braut á Luis Suarez. Liverpool er komið í 45 stig í 6. sæti og er nú sjö stigum á eftir Chelsea í fjórða sæti deildarinnar en Chelsea á leik til góða. Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Tottenham sem er í þriðja sæti deildarinnar með 54 stig. Gylfi fékk tvö góð færi í leiknum en náði ekki að skora.
Enski boltinn Mest lesið Hneysklaður á ósönnum orðrómum Fótbolti Þreytt á umræðu um líkamann sinn: „Á ekki að tjá sig um það“ Sport Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Enski boltinn Hættir ekki fyrr en hann skorar þúsund mörk Fótbolti Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Skynjar stress hjá Arsenal Enski boltinn Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Dagskráin í dag: Pílukast og Íslandsmeistarar Sport Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Knattspyrnustjórar eru ekki töframenn“ Segja að Wirtz græði á fjarveru Salah: „Sé hann fljúga í gang“ Skynjar stress hjá Arsenal Sjáðu frábært samspil Leeds og Gray tryggja Spurs sigurinn Ekkja Jota þakklát: „Hefur meiri þýðingu en orð geta lýst“ Jöfnuðu 128 ára gamalt met Gray hetja Tottenham Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Andri Lucas frá í mánuð Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Sjá meira