Bikarævintýri Oldham endaði á Goodison Park Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2013 19:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Everton tryggði sér sæti í sjöttu umferð enska bikarsins og leik á móti Wigan Athletic með því að vinna öruggan 3-1 sigur á C-deildarliði Oldham á Goodison Park í kvöld í endurteknum leik úr sextán liða úrslitum keppninnar. Oldham hafði áður slegið Liverpool út úr bikarnum en fyrri leik Everton og Oldham á heimavelli Oldham-liðsins endaði 2-2 þar sem Oldham-liðið jafnaði metin í uppbótartíma. Bikarævintýrinu hjá Oldham lauk hinsvegar í kvöld. Kevin Mirallas kom Everton í 1-0 á 15. mínútu þegar hann lék á rangstöðuvörn Oldham-manna og afgreiddi flotta fyrirgjöf Darron Gibson í netið. Skömmu síðar átti Oldham-maðurinn Jose Baxter skot í stöngina og í kjölfarið fór boltinn greinilega í hönd Darron Gibson en engin vítaspyrna var dæmd. Everton-liðið fékk hinsvegar vítaspyrnu á 34. mínútu fyrir hendi á varnarmann Oldham og úr henni skoraði Leighton Baines. Leon Osman kom Everton í 3-0 á 62. mínútu eftir að hann skallaði inn fyrirgjöf Steven Pienaar en Matt Smith minnkaði muninn aðeins tæpum tveimur mínútum síðar. Matt Smith hefur þar með skorað fjögur mörk í síðustu þremur bikarleikjum liðsins á móti Liverpool og Everton (2). Sjö af átta liðum hafa nú tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum en á morgun spila Middlesbrough og Chelsea um síðasta sætið þar sem sigurvegarinn mætir Manchester United á Old Trafford.
Enski boltinn Mest lesið Segja Andra Lucas til sölu Fótbolti Ræddi metið við son Tryggva: „Myndi skipta mig miklu máli að ná þessu meti“ Íslenski boltinn „Mjög ryðguð en furðu fljótt fór rykið af mér“ Íslenski boltinn Markalaus en öruggur opnunarleikur í Miami Fótbolti Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Enski boltinn Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Enski boltinn Verstappen pirraður á barnalegum spurningum um bannið Formúla 1 Dagskráin í dag: Bestu deildir karla og kvenna ásamt Opna bandaríska Sport Russell aftur á ráspól í Kanada: „Virkilega ánægður“ Formúla 1 Í beinni: Valur - Fram | Valskonur í vanda með ólseigum Frömurum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sendi sónarmynd: Tvö ákærð eftir fjárkúgun gamallar kærustu Vilja tæpa tólf milljarða fyrir Garnacho Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Man City staðfestir kaupin á Cherki Forest vill niðurstöðu í mál Palace Man City ræður annan úr teymi Klopp hjá Liverpool Chelsea vill Gittens áður en glugginn lokar Allt klárt og Frank verður næsti stjóri Tottenham Aït-Nouri fyrstur inn um dyrnar hjá Man City Segja Man United hafa sett í samband við Sporting vegna framherjans eftirsótta Sjá meira