Enski boltinn

Man. City til í að selja Nasri

Nasri í leik gegn Swansea.
Nasri í leik gegn Swansea.
Svo virðist vera sem Samir Nasri eigi ekki neina framtíð fyrir sér hjá Man. City. Hann hefur ekki staðið sig vel í vetur og stjóri liðsins, Roberto Mancini, efast um viðhorf leikmannsins til liðsins.

Samkvæmt heimildum erlendra fjölmiðla eru forráðamenn Man. City til í að hlusta á tilboð í leikmanninn sem þeir keyptu á 25 milljónir punda frá Arsenal árið 2011.

Nasri ku vera falur á 18 milljónir punda. Leikmaðurinn sjálfur er sagður vilja komast burt frá Manchester.

Nasri er 25 ára gamall. Hann er sagður vilja komast aftur að hjá liði í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×