Enski boltinn

Stuðningsmenn West Ham særðu Parker

Scott Parker, leikmaður Tottenham, fékk heldur óblíðar móttökur á sínum gamla heimavelli, Upton Park, er hann spilaði gegn West Ham á mánudag.

Stór hópur stuðningsmanna West Ham baulaði á hann og Parker viðurkennir að sér hafi sárnað við baulið.

"Ég átti alls ekki von á því að stuðningsmenn West Ham myndu baula á mig. Það kom mér í uppnám," sagði Parker en hann lék með félaginu í fjögur ár.

"Ég veit ekki af hverju þeir voru að baula á mig. Ég hélt ég myndi fá betri móttökur eftir það sem ég gerði fyrir félagið. Ég elska þennan völl og stuðningsmennina. Ég átti frábæran tíma þarna og West Ham á stóran sess í mínu hjarta. Ég hlakkaði til að koma þangað og þess vegna varð ég fyrir miklum vonbrigðum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×