Enski boltinn

Aron og Heiðar gætu leikið fyrir Drekana næsta vetur

Aron í nýja aðalbúningnum sem er rauður. Merkinu var einnig breytt og þar settur dreka í stað bláfugls.
Aron í nýja aðalbúningnum sem er rauður. Merkinu var einnig breytt og þar settur dreka í stað bláfugls.
Íslendingaliðið Cardiff City, sem Aron Einar Gunnarsson og Heiðar Helguson leika með, stefnir hraðbyri í ensku úrvalsdeildina en það gæti haft breytingar í för með sér.

Eigandi félagsins, Vincent Tan, hefur nefnilega ekki útilokað að breyta nafni félagsins. Hann íhugar nú að breyta nafni félagsins í Cardiff Drekarnir.

Tan er milljarðamæringur frá Malasíu og hann vill asískar tengingar í félagið. Hann hefur þegar náð í gegn breytingum á aðalbúningi félagsins sem er nú rauður og merki félagsins var líka breytt..

"Við munum skoða þetta þegar það liggur ljóst fyrir hvort við förum upp eður ei. Þá skoðum við hvernig sé best að auglýsa félagið," sagði Tan.

"Ég er ekki búinn að úthugsa þetta með Drekanafnið. Við eigum eftir að fara alveg yfir það mál."

Tan er vanur að ná sínu fram hjá félaginu. Hann hótaði að hætta að styðja félagið síðasta sumar ef aðalbúningarnir yrðu ekki rauðir. Það var samþykkt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×