Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið geti vel keppt við ríkustu félög heims á leikmannamarkaðnum. Arsenal græddi tæpar 18 milljónir punda á síðasta hálfa rekstrarári og eigið fé félagsins um tæpar 124 milljónir punda.
Stuðningsmenn Arsenal krefjast þess að félagið nýti eitthvað af þessum peningum til þess kaupa hágæðaleikmenn svo það eigi möguleiki að keppa um titla á nýjan leik.
Stuðningsmennirnir eru orðnir langþreyttir á að sjá bestu leikmenn félagsins hverfa á braut. Má þar nefna menn eins Robin van Persie og Cesc Fabregas.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sagði að félagið ætti að geta keypt Falcao frá Atletico Madrid ef það vildi. Hill-Wood tekur undir það.
"Ef það er til leikmaður sem við virkilega viljum þá ættu peningar að skipta litlu máli," sagði Hill-Wood.
Arsenal getur keppt við risana á leikmannamarkaðnum

Mest lesið








Lárus sagði leikmenn ÍA hætta og stjórnendur sofa á verðinum
Íslenski boltinn


Reif Sæunni niður á hárinu
Íslenski boltinn