Van Persie mun ræða við Arsenal þegar hann kemur úr fríinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2012 17:00 Robin Van Persie fagnar marki með Theo Walcott. Mynd/Nordic Photos/Getty
BBC hefur heimildir fyrir því að Robin Van Persie ætli að ræða við Arsenal um framtíð sína hjá félaginu þegar hann kemur til baka úr sumarfríi í byrjun júlí. Van Persie hefur verið í fríi síðan að hollenska landsliðið féll út keppni á EM fyrir tíu dögum síðan. Robin Van Persie varð markakóngur ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en hann skoraði þá 30 mörk í 38 leikjum auk þess að leggja upp önnur 14 mörk fyrir félaga sína. Það er óhætt að segja að hann hafi haldið upp sóknarleik Arsenal-liðsins. Van Persie á bara eftir eitt ár af samningi sínum við Arsenal og samkvæmt frétt BBC þá er hann alveg sáttur við að klára síðasta árið í samningnum og fara síðan á frjálsri sölu næsta sumar. Arsenal hefur enn ekki gefið honum formlegt tilboð um nýjan samning en það má búast við að nýr samningur verði ræddur þegar Van Persie mætir til Lundúna í byrjun næsta mánaðar. Van Persie hefur verið orðaður við mörg lið undanfarna mánuði og þá einkum lið Manchester City og Juventus en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, ætlar að reyna allt til að halda þessum frábæra framherja.
Mest lesið Vandræðaleg heimsókn til Trump í Hvíta Húsið: „Kæmist kona í ykkar lið?“ Fótbolti Miðaverð á Old Trafford eins og „spark í tennurnar“ Sport Fyrsta skiptið síðan 1960 sem enginn fótbolti er skráður á annan í jólum Sport Þrír Íslendingar tilnefndir af Evrópska handknattleikssambandinu Sport Jafntefli í fyrsta leik Xabi Alonso og Trent hjá Real Madrid Sport KA menn fá örvhenta norska skyttu Sport Þýski tveggja metra Messi orðaður við ensku úrvalsdeildina Sport Dagskráin í dag: LPGA og NBA úrslitakeppnin Sport PGA fær nýjan forstjóra frá NFL deildinni Sport Komið í ljós hverjir mæta hverjum í 8-liða úrslitum EM U21 Sport Fleiri fréttir Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sjá meira