Füchse Berlin komið í Meistaradeildina eftir stórsigur á Lemgo Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. maí 2012 17:58 Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Dagur Sigurðsson stýrði sínum mönnum í Füchse Berlin inn í Meistaradeildina á næsta tímabili þegar Refirnir tryggðu sér þriðja sætið í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta með því að vinna tólf marka stórsigur á TBV Lemgo, 36-24. Alexander Petersson lék vel í vörn og sókn með Füchse Berlin í fyrri hálfleiknum og skoraði þá þrjú mörk en Dagur Sigurðsson gat leyft sér að hvíla hann í seinni hálfleiknum enda yfirburðirnir mjög miklir. Þetta var síðasti heimaleikur Alexanders með Füchse Berlin en hann er á leiðinni til Rhein-Neckar Löwen. Füchse Berlin hefur þar með þriggja stiga forskot á fráfarandi meistara í HSV Hamburg en aðeins einn leikur er eftir af mótinu. Dagur Sigurðsson er á sínu þriðja ári með Füchse Berlin en liðið komst í fyrsta sinn í Meistaradeildina í vetur og fór þá alla leið í undanúrslitin. Liðið endaði í 9. sæti fyrsta tímabilið en náði þriðja sætinu í fyrra. Füchse Berlin skildi Lemgo-liðið eftir í stöðunni 6-5 en Füchse-liðið vann síðustu 18 mínútur fyrri hálfleiksins 13-3 og var ellefu mörkum yfir í hálfleik 19-8. Alexander Petersson skoraði 3 mörk í fyrri hálfleiknum og stal auk þess boltanum nokkrum sinnum af leikmönnum Lemgo. Hollendingurinn Mark Bult var markahæstur hjá Füchse Berlin með 12 mörk en hann kom í hægri skyttuna þegar Alexander var hvíldur. Bult verður í stóru hlutverki með hollenska landsliðinu sem mætir Íslandi í umspili um sæti á HM á Spáni 2013.
Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira