Arsenal og Norwich skildu jöfn í ótrúlegum leik | Dýrmæt stig í súginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. maí 2012 08:43 Nordic Photos / Getty Images
Eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni er lokið með 3-3 jafntefli Arsenal og Norwich í einum skemmtilegasta leik tímabilsins til þessa. Arsenal komst tvívegis yfir í leiknum en var þó undir í hálfleik, 2-1. Robin Van Persie skoraði svo tvisvar með skömmu millibili undir lok leiksins og virtist ætla að tryggja sínum mönnum sigurinn. En allt kom fyrir ekki. Steve Morison jafnaði metin fimm mínútum fyrir leikslok og þar við sat. Van Persie fékk þó eitt dauðfæri til viðbótar sem hann nýtti sér ekki og þá átti hann að fá vítasprnu þegar að Kyle Naughton braut á honum. En Norwich átti þó heilmikið í leiknum og fengu bæði lið fjölda færa í leiknum sem þau fóru illa með. Yossi Benayoun skoraði fyrsta mark leiksins strax á annarri mínútu með glæsilegu skoti en Wes Hoolahan jafnaði metin tíu mínútum síðar með skoti sem Wojciech Szczesny hefði átt að verja. Annað mark Norwich var einnig óheppilegt en Grant Holt átti skot að marki sem hafði viðkomu í Kieran Gibbs, varnarmanni Arsenal, og yfir Szczesny í markinu. Van Persie jafnaði svo metin eftir frábæra sendingu frá Alex Song inn fyrir varnarlínu gestanna. Það var svo meiri heppnisstimpill á síðar marki Van Persie en boltinn féll fyrir fætur hans í teignum og skoraði Hollendingurinn öflugi örugglega úr skotinu. En Norwich gafst ekki upp og komst í skyndisókn á 85. mínútu. Jonny Howson gaf á Morison sem hafði nægan tíma til að athafna sig og skoraði með föstu skoti í markhornið fjær. Arsenal er nú með 67 stig og getur mest komist upp í 70 stig. Tottenham og Newcastle eiga þó bæði tvo leiki eftir og geta mögulega komist upp í 71 stig og ýtt Arsenal þar með niður í fimmta sætið. Lærisveinar Arsene Wenger þurfa því að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að komast aftur í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Norwich er í þrettánda sæti með 44 stig.
Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Bæjarar hófu titilvörnina með stórsigri Fótbolti Fleiri fréttir Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Sjá meira