Enski boltinn

Whelan: Liverpool fá frest fram á fimmtudag

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Martinez hefur verið hjá Wigan síðan 2009.
Martinez hefur verið hjá Wigan síðan 2009.
Dave Whelan, stjórnarformaður Wigan, hefur gefið Liverpool frest fram á fimmtudag til þess að ákveða sig hvort að þeir ætli sér að ráða Roberto Martinez sem nýjan stjóra liðsins.

Martinez mun koma til með að funda með forráðarmönnum Liverpool á nýjan leik í fyrramálið og vonast Whelan til þess að málið leysist þá.

„Ég hef sagt þeim að þeir þurfi að vera búnir að ákveða sig á fimmtudaginn í síðasta lagi, svo að við getum farið að undirbúa næsta tímabil hér hjá Wigan," sagði Whelan.

Sögur hafa verið á kreiki um að Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea sé orðinn helsta skotmark Liverpool manna.

„Ef það er satt að þeir séu að skoða hann þá eru þeir ekki ákveðnir um hvern þeir vilja fá til þess að stýra liðinu. Ég vona að þeir velji Brendan Rodgers," sagði Whelan að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×