Hafa fallist á nýjar viðræður við Írana 7. mars 2012 01:00 Hernaður gegn Íran var til umræðu á fundi þeirra Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Baracks Obama Bandaríkjaforseta. nordicphotos/AFP
Sex áhrifamikil ríki, sem árum saman hafa átt í viðræðum við Írani um kjarnorkuáform þeirra og alþjóðlegt kjarnorkueftirlit, féllust í gær á frekari viðræður í von um lausn á deilunni, sem magnast hefur jafnt og þétt undanfarnar vikur og mánuði. Það var Catherine Ashton, utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins, sem svaraði beiðni Írana um viðræðum fyrir hönd Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Bandaríkjanna, Rússlands og Kína. Síðustu viðræður við Írana, sem haldnar voru í ársbyrjun 2011, skiluðu þó afar litlum árangri. Beinar og óbeinar hótanir, einkum frá Ísrael og Bandaríkjunum, um árásir á Íran hafa smám saman orðið æ háværari. Á fundi þeirra Baracks Obama Bandaríkjaforseta og Benjamíns Netanjahús, forsætisráðherra Ísraels, í Washington um helgina sagði Netanajahú að nú væru síðustu forvöð að hefja árásir á Íran, áður en þeim tækist að koma sér upp kjarnorkuvopnum. Obama hefur viljað fara hægar í sakirnar, en segir berum orðum að hernaður gegn Íran sé ekki útilokaður og lofar því að standa við bakið á Ísrael. Sjálfir hafa Íranar jafnan neitað því að þeir séu að koma sér upp kjarnorkuvopnum, heldur sé stefna þeirra í kjarnorkumálum eingöngu sú að tryggja landsmönnum raforku. Óvíst er enn hvaða áhrif úrslit þingkosninganna í Íran í lok síðustu viku munu hafa á þessar deilur. Mahmoud Ahmadinejad forseti, sem enn á meira en ár eftir af sínu kjörtímabili, verður í minnihluta þegar nýkjörið þing kemur saman í maí. - gb
Mest lesið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Innlent Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Erlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Fleiri fréttir Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Sjá meira