Var fljótur að grípa tækifærið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. janúar 2012 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson hefur setið mikið á bekknum í Þýskalandi en vonast eftir því að spila meira með Swansea. Mynd/Nordicphotos/Bongarts
Eins og kunnugt er þá er landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson á leið í enska boltann á nýjan leik. Félag hans, Hoffenheim, hefur lánað Gylfa til enska úrvalsdeildarliðsins Swansea út leiktíðina. Hjá Swansea hittir Gylfi fyrir stjórann Brendan Rodgers sem gaf honum tækifæri hjá Reading á sínum tíma. „Þetta leggst mjög vel í mig. Það hefur verið erfitt að sitja á bekknum í Þýskalandi en ég fæ vonandi tækifæri til þess að spila fótbolta núna," sagði Gylfi við íþróttadeild en af hverju hefur hann ekki verið að að fá tækifæri hjá Hoffenheim í vetur? „Það kom nýr þjálfari og svo missti ég af undirbúningstímabilinu. Ég hef fengið fá tækifæri og ekki tekist að skora þegar ég hef fengið að spila. Þegar tækifærið gafst að fara til Englands var ég fljótur að grípa það." Gylfi er vongóður um að Rodgers ætli sér að spila honum. „Mér líkaði mjög vel við Rodgers er hann var hjá Reading og hann vill að sín lið spili fótbolta. Það hefur Swansea verið að gera og vonandi passa ég vel inn í boltann sem liðið spilar," sagði Gylfi sem segist vera í góðu formi og klár í slaginn. „Ég vil spila sem allra fyrst. Ég var í mjög góðu formi fyrir jólin og hef haldið mér vel við. Enska deildin er hraðasta og besta deild heims og það verður gaman að spila þar." Gylfi er samningsbundinn Hoffenheim næstu tvö árin en hann fær kjörið tækifæri til þess að sanna sig upp á nýtt með Swansea. „Það er jákvætt að fá að spila núna og flott að ég fékk að fara í stað þess að sitja áfram á bekknum í Þýskalandi."
Mest lesið Orri hetjan í fyrsta sigrinum Fótbolti Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Enski boltinn Uppgjör: ÍBV - Þór 0-1 | Þór lyfti sér upp úr fallsvæðinu Íslenski boltinn Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Enski boltinn Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Enski boltinn Afturelding tryggði sig í Bestu deildina með frábærum sigri Íslenski boltinn Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Sjáðu óverjandi mark Hákons gegn PSG Fótbolti „Lentum á andlegum vegg að þessu sinni“ Fótbolti Linda Líf gengur til liðs við nýliðana í enska boltanum Sport Fleiri fréttir Gakpo valdi City og viðræður í fullum gangi Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Elanga byrjar frábærlega en Tottenham ömurlega Íslendingar spiluðu stór hlutverk í leikjum dagsins á Bretlandseyjum Bournemouth - Everton 1-1| Everton bjargar jafntefli Sjáðu Haaland skora með sínu nýja hári Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Sjá meira