Enski boltinn

Wigan hafnaði tilboði Chelsea í Moses

Moses í leik gegn Man. Utd.
Moses í leik gegn Man. Utd.
Wigan ætlar ekki að sleppa framherjanum magnaða, Victor Moses, fyrir lítið en félagið hefur nú hafnað tilboði frá Chelsea í leikmanninn.

Moses á aðeins tólf mánuði eftir af samningi sínum við Wigan og hefur hingað til ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið.

Wigan verður því helst að selja í sumar ef félagið vill fá góðan pening fyrir hann. Fjölmörg félög hafa áhuga á þessum 21 árs strák.

Tilboð Chelsea var víst nokkuð frá því sem Wigan vill fá fyrir leikmanninn. Ekki er ólíklegt að Chelsea hækki tilboð sitt í leikmanninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×