Óvíst hvort Wilshere verði klár í upphafi næsta tímabils Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. apríl 2012 12:30 Wilshere er lykilmaður í framtíðarplönum Arsene Wenger. Nordic Photos / Getty
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, segir ekki víst hvort miðjumaðurinn Jack Wilshere verði klár í slaginn við upphaf næsta keppnistímabils. Wilshere hefur verið frá keppni síðan í maí 2011 þegar hann meiddist á ökkla í leik gegn Fulham. Wilshere fór í árangursríkan uppskurð en meiddist á ný í endurhæfingu í janúar. Ljóst er að Wilshere spilar ekki með Arsenal í þeim þremur leikjum sem eftir eru í deildinni. Þá hefur hann verið útilokaður frá þátttöku með enska landsliðinu á Evrópumótinu í Póllandi og Úkraínu í sumar. Bretar bundu þó vonir við að hann yrði klár í slaginn á Ólympíuleikunum í London sem hefjast í lok júlí. Arsene Wenger líst hins vegar ekki á þær pælingar. „Ég vil ekki að hann setji sér það markmið að spila á Ólympíuleikunum í sumar vegna þess að enn er óvíst hvort hann verði klár í upphafi næstu leiktíðar," sagði Wenger. Franski knattspyrnustjórinn segir Wilshere hafa orðið fyrir nógu miklum vonbrigðum í endurhæfingu sinni. „Hann varð fyrir fyrsta áfallinu en gat huggað sig við þátttöku á Evrópumótinu. Svo þurfti að gera honum ljóst að hann gæti ekki spilað á Evrópumótinu. Þá varð hann aftur fyrir vonbrigðum," segir Wenger. „Ef við gerum Ólympíuleikana að nýju takmarki og hann nær því ekki er það slæmt veganesti í endurhæfingu hans," sagði Wenger sem vill að enski miðjumaðurinn fái næði til að vinna í sínum meiðslum einn dag í einu.
Mest lesið Besta sætið um Ómar: Væri búið að heyrast eitthvað ef þetta væri Aron eða Óli Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Sjáðu myndirnar: Beygðir en ekki brotnir á bóndadegi Handbolti Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Enski boltinn Náðu loksins Ólympíufaranum á lista FBI yfir hættulegustu glæpamennina Sport „Börnin mín fengu mig til að hætta með reiðiköstin“ Fótbolti Jói Berg vill draga úr auglýsingaflóðinu í kringum handboltann Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Vill umræðu um sniðgöngu HM vegna Trump Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney spilaði á Old Trafford Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Óttast að Grealish verði lengi frá Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Bestu mörkin: Sjáðu glæsilegan hjólhest gríska táningsins „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Guéhi genginn til liðs við City „Þetta eru svakaleg kaup“ Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Sjá meira