Fótbolti

Zlatan bjargaði stigi fyrir PSG

Kristnn Páll Teitsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Mynd/Nordic Photos/Getty
Zlatan Ibrahimovic kom í veg fyrir neyðarlegt tap í fyrsta leik sínum fyrir Paris Saint German í gærkvöldi. Zlatan sem kom til liðsins frá Milan skoraði tvö mörk í jafntefli liðsins við Lorient.

Paris Saint German hafa vakið mikla athygli síðastliðið ár allt frá yfirtöku ríkra fjárfesta frá Qatar.

Liðið hefur styrkt sig gríðarlega síðustu mánuði og eytt fúlgum fjár. Leikmenn á borð við Zlatan Ibrahimovic, Thiago Silva, Javier Pastore og Lucas Moura munu allir leika undir stjórn Carlo Ancelotti á þessu tímabili.

Lorient á hinn bóginn rétt sluppu við fall á síðastliðnu tímabili og bjuggust því eflaust flestir við að PSG myndu valta yfir þennan leik á heimavelli. Það varð þó ekki og komust Lorient í 2-0 áður en Zlatan Ibrahimovic tók til sinna mála og skoraði tvö mörk og bjargaði stigi fyrir PSG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×