Enski boltinn

Ferdinand-bræður óánægðir með enska sambandið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Anton og Rio Ferdinand.
Anton og Rio Ferdinand. Nordic Photos / Getty Images
Um helgina verður átak gert í ensku úrvalsdeildinni gegn kynþáttafordómum. Jason Roberts og Ferdinand-bræðurnir, Rio og Anton, ætla hins vegar að sniðganga átakið.

Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni munu um helgina klæðast sérstökum bolum með áletruninni „Kick It Out" en samkvæmt enskum fjölmiðlum munu þeir þrír ekki taka þátt í því.

Þetta vilja þremenningarnir gera til að lýsa óánægju sinni með þá meðferð sem John Terry fékk fyrir að nota niðrandi orðbragð um Anton Ferdinand.

Terry var dæmdur í fjögurra leikja bann og sektaður um tæpar 50 milljónir króna af enska sambandinu. Hann ákvað í gær að áfrýja ekki niðurstöðunni og baðst síðar afsökunar á orðum sínum.

Chelsea greindi svo frá því í gær að félagið hefði einnig refsað Terry en vildi ekki greina frá því í hverju sú refsing hafi falist.

Málið hefur dregist mjög á langin því atvikið átti sér stað í október í fyrra. Í sumar var Terry sýknaður fyrir breskum dómstólum en eftir að enska sambandið tók málið upp í lok sumars ákvað Terry að hætta að gefa kost á sér í enska landsliðið. Hann spilaði þó með Englendingum á EM í sumar.

„Svo virðist sem að yfirvöld hafi ekki kjark í sér til að taka á þessu máli. Ef leikmennirnir gera það ekki - þá gerir það enginn," sagði Roberts við enska fjölmiðla en hann leikur með nýliðum Reading í ensku úrvalsdeildinni.

Roberts sagði refsinguna sem Terry fékk hafa verið langt frá væntingum almennings og hann sagði að Chelsea yrði að taka fastar á málinu.

„Til hvaða refsingar ætti vinnuveitandi að grípa ef svona orðbragð er notað á vinnustaðnum? Ég veit það ekki. En fjögurra leikja bann er fjarri lagi og það er nú undir Chelsea komið að gera hið rétta í stöðunni."

Nú í vikunni voru kynþáttafordómar enn á ný í brennidepli í enskum fjölmiðlum vegna þeirra meðferðar sem Danny Rose, leikmaður enska U-21 landsliðsins, fékk í Serbíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×