Skrapp óvart til Íslands BBI skrifar 15. júní 2012 16:51
Pólskur eftirlaunaþegi ætlaði að bregða sér í heimsókn frá Hirtshals í Danmörku til Kristjánssands í Noregi. Fyrir ótrúleg mistök var hann sendur um borð í Norrænu og siglt til Íslands. Wieslaw Garstecki er 57 ára pólverji. Síðasta laugardag ætlaði hann að skreppa yfir Ermasundið í heimsókn til fjölskyldu sinnar. Siglingin á milli Danmerkur og Noregs tekur um tvo tíma. Eftir nokkurra tíma siglingu fór hann að gruna að ekki væri allt með feldu því hann sá hvergi til lands. Wieslaw hafði þá lent um borð í Norrænu og var á leið til Íslands. Sú sigling tekur eina þrjá daga. Þegar Wieslaw uppgötvaði mistökin stóð fjölskyldan hans á bryggju á Kristjánssandi í Noregi og beið. Loks þegar hann náði sambandi við ættingja sína gat hann sagt þeim að honum myndi seinka um viku því hann þyrfti að sigla alla leið til Íslands og aftur til baka með Norrænunni. Hann verður því kominn í faðm fjölskyldunnar á morgun eftir sjö daga siglingu. Wieslaw var að eigin sögn dolfallinn yfir fegurðinni á Íslandi en fannst aftur á móti nokkuð kalt í veðri. Sigling til og frá Íslandi með Norrænunni kostar venjulega eina persónu yfir 75 þúsund krónur. Smyril Line, sem rekur Norrænu, ætla hins vegar ekki að rukka Wieslaw fyrir ferðalagið. Starfsmenn félagsins segja þetta alveg sérstakt tilfelli, eitthvað sem gerist ekki nema á hundrað ára fresti. Wieslaw er að eigin sögn bara ánægður með siglinguna. „Maður verður bara að sjá húmorinn í þessu," segir hann.Umfjöllun Dagbladet um málið.
Mest lesið Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ Innlent Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Fleiri fréttir Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Sjá meira