Enski boltinn

Terry og leikmenn Chelsea vilja halda Di Matteo

John Terry, fyrirliði Chelsea, er greinilega mjög hrifinn af nýja stjóranum, Roberto di Matteo sem ráðinn var til bráðabirgða í kjölfar þess að Andre Villas-Boas var rekinn.

Undir stjórn Di Matteo hefur Chelsea sprungið út. Liðið vann ensku bikarkeppnina um helgina og er einnig í úrslitum Meistaradeildarinnar.

"Við leikmenn getum gert stjórninni auðvelt fyrir með vali á næsta stjóra því Di Matteo er búinn að vera framúrskarandi. Ég held að sigurinn í bikarnum muni hjálpa okkur að vinna Meistaradeildina líka," sagði Terry en hann og leikmenn liðsins virðast standa á bak við Ítalann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×