Enski boltinn

QPR búið að finna leið til að flýta endurkomu Joey Barton

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joey Barton
Joey Barton Mynd/Nordic Photos/Getty
QPR er hugsanlega búið að finna leið til þess að fá vandræðagemlinginn Joey Barton fyrr til baka úr tólf leikja banninu sem miðjumaðurinn skapheiti var dæmdur í vegna framkomu sinnar í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar síðasta vor.

Barton fékk rauða spjaldið í leik á móti verðandi Englandsmeisturum Manchester City og sparkaði síðan Sergio Aguero niður á leið sinni af vellinum. Hann fékk samtals tólf leikja bann auk þess að þurfa að borga 75 þúsund punda sekt.

Reglugerð enska sambandsins gæti leyft QPR að lána Barton til annars félags og að hann tæki í framhaldinu bannið út hjá því félagi. Barton yrði þá lánaður til félags í neðri deildunum og væri þá fljótari að éta upp bannið því liðin í b- og c-deildinni spila fleiri leiki en liðin í úrvalsdeildinni.

QPR spilar sinn tólfta leik í ensku úrvalsdeildinni 17. nóvember en liðin í deildunum fyrir neðan spila sinn tólft leik í kringum 23 og 24. október. Hér er því mikill munur á og Barton hefur nefnt hugsanlegan lánsamning í skrifum sinum inn á twitter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×