Enski boltinn

Arsenal-maður tekinn á teppið fyrir twitter-skrif

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emmanuel Frimpong.
Emmanuel Frimpong. Mynd/AFP
Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur kært Arsenal-manninn Emmanuel Frimpong fyrir skrif hans inn á twitter-síðu sína um helgina. Frimpong brást illa við skilaboðum Tottenham-stuðningsmanns inn á twitter-síðu sinni og svaraði honum í reiðikasti. Frimpong tók ummæli sín fljótlega út af síðu sinni en það var of seint.

Enska sambandið segir að Frimpong hafi notað vísanir til þjóðernis, kynþáttar og trúar í skrifum sínum en hann var þarna að svara móðgandi ummælum stuðningsmannsins Tottenham sem tókst að ná honum upp.

Frimpong fær frest til 27. júlí til þess að útskýra sitt mál en þessi 20 ára miðjumaður er þessa dagana að jafna sig eftir hnémeiðsli sem hann varð fyrir á láni hjá Wolverhampton Wanderers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×