Fjöldi leikmanna sem hefur unnið ensku deildina með tveimur félögum tvöfaldaðist Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. maí 2012 06:00 Það fór vel á með þeim Roberto Mancini og Carlos Tevez á Etihad-leikvanginum í gær. Nordic Photos / Getty
Englandsmeistaratitillinn sem Manchester City tryggði sér í gær var merkilegur fyrir margra hluta sakir. Til dæmis var um fyrsta Englandsmeistaratitilinn að ræða hjá félaginu í 44 ár auk þess sem hann vannst með síðasta marki tímabilsins. Þá fjölgaði leikmönnum sem hafa unnið ensku úrvalsdeildina með tveimur félögum úr þremur í sex. Enska úrvalsdeildin var stofnuð árið 1992 en þá gerðu liðin í efstu deild á Englandi sjónvarpsréttarsamning við Sky-sjónvarpsstöðina án aðkomu enska knattspyrnusambandsins. Tekjur félaganna jukust til muna, erlendum stjörnum fjölgaði og í dag er deildin án nokkurs vafa sú vinsælasta í heiminum. Þar til í ár höfðu aðeins þrír leikmenn verið í sigurliði í ensku úrvalsdeildinni með tveimur félögum. Norðmaðurinn Henning Berg vann titilinn með Blackburn 1995 og Manchester United 1999. Frakkinn Nicolas Anelka vann titilinn með Arsenal 1998 og með Chelsea 2010. Þá var Englendingurinn Ashley Cole í sigurliði Arsenal 2002 og 2004 en einnig meistari með Chelsea árið 2010. Þeir Gael Clichy frá Frakklandi, Kolo Toure frá Fílabeinsströndinni og Argentínumaðurinn Carlos Tevez, leikmenn Manchester City, bættust í gær í þennan fámenna hóp farandverkamanna sem hafa fagnað titlinum með tveimur félögum. Clichy vann titilinn árið 2004 með Arsenal og sömu sögu má segja um Kolo Toure. Arsenal fór einmitt taplaust í gegnum timabilið 2003-2004. Carlos Tevez vann titilinn tvö ár í röð með Mancheter United, árið 2008 og 2009.
Mest lesið Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti „Slakiði á“ Fótbolti Edwards rekinn frá Úlfunum Fótbolti HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Fótbolti Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira