Framherji Newcastle Demba Ba hefur sagt stuðningsmönnum félagsins að hlusta ekki á fréttir um að hann sé á förum frá félaginu. Það sé ekkert að marka þær.
Orðrómur hefur verið um að Ba sé með klausu í samningi sínum sem geri honum kleift að yfirgefa félagið fyrir litla upphæð. Hefur hann í kjölfarið verið orðaður sterklega við Man. Utd og Tottenham.
"Ég veit ekki hvað ég á að segja. Stuðningsmennirnir sjá mig í Newcastle-treyju á vellinum. Það eru mín skilaboð til þeirra. Allt annað er bull," sagði Demba Ba.
"Eins og ég sagði á Twitter eru þetta bara orðrómar. Ekkert af þessum liðum hefur talað við mig."
Demba Ba segist ekki vera á förum frá Newcastle

Mest lesið


Kane afgreiddi Brassana
Fótbolti

„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti

Uppgjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga
Íslenski boltinn





Joao Pedro til Chelsea
Fótbolti
