Mótmælin harðna á Spáni Hugrún Halldórsdóttir skrifar 14. júlí 2012 19:20
Spænska óeirðalögreglan beitti í nótt táragasi gegn mótmælendum sem hafa gengið um götur höfuðborgarinnar í landinu síðasta sólarhringinn og krafið þarlend stjórnvöld um að falla frá niðurskurðaráætlunum. Mörg hundruð Spánverjar héldu út í gær til að mótmæla niðurskurðinum sem felur meðal annars í sér launalækkun opinberra starfsmanna og hækkun skatta en aðgerðirnar eru sagðar bitna einna helst á millistéttarfólki. „Nú er þetta ekki eins og á síðasta ári þegar við gengum friðsamlega um göturnar, því nú spilar svo margt fleira inní. Til dæmis var fólk beinlínis móðgað í gær í þinginu. Svo ég held að þetta sé mikilvægur vendipunktur," segir mótmælandi á Spáni. Mótmælin stóðu yfir í alla nótt og héldu áfram í dag. Þau hafa verið allt annað en hljóðlát og mikið um stympingar. Óeirðalögregla beitti táragasi á mótmælendur í nótt en hún hefur sökuð um að hafa sýnt of mikla hörku. „Einn mótmælandi var handtekinn og laminn í klessu af óeirðalögreglunni. Lögreglumaðurinn var beinlínis að kýla hann ítrekað í smettið. Reyndar missti einn óeirðarlögreglumaður hjálminn sinn í átökunum," segir mótmælandi.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira