Capello sækist eftir stjórastólnum hjá Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. maí 2012 10:45 Fabio Capello. Mynd/AFP
Fabio Capello, fyrrum landsliðsþjálfari Englendinga, er að leita sér að starfi í ensku úrvalsdeildinni og hefur nú gefið það út að hann vilji helst fá tækifæri til að stýra liði Chelsea. Þetta kemur fram í Guardian sem hefur heimildir fyrir því að Capello hafi látið forráðamenn Chelsea vita af áhuga sínum. Capello ætlar að mæta á úrslitaleik Meistaradeildarinnar í München um helgina en það verður síðasti leikur Chelsea undir stjórn Roberto Di Matteo sem tók við liðinu tímabundið. Frábær frammistaða Chelsea-liðsins undir stjórn Di Matteo hefur þó aukið líkurnar á því að hann fái fastráðningu en það er þó ekki öruggt. Roman Abramovich, eigandi Chelsea, vill helst ráða Pep Guardiola en Spánverjinn hefur hafnað tveimur risatilboðum frá Chelsea og stendur fast á þeirri ákvörðun sinni að taka sér ársfrí. Capello á enn íbúð í Chelsea-hverfinu og var áður búinn að lýsa yfir áhuga á því að stýra liði í ensku úrvalsdeildinni. Hann nefndi ekki Chelsea á nafn en talaði um að fá að stýra liðið sem væri klárt í að berjast um alla titla, bæði heima fyrir og í Meistaradeildinni. Capello er orðinn 65 ára gamall og hafði stýrt enska landsliðinu undanfarin fjögur ár en hann hefur unnið níu titla á sextán tímabilum með AC Milan, Real Madrid, Roma og Juventus.
Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Sjá meira