Enski boltinn

Vaz Te, hetja West Ham: West Ham er úrvalsdeildarklúbbur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ricardo Vaz Te fagnar markinu sínu.
Ricardo Vaz Te fagnar markinu sínu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Ricardo Vaz Te tryggði West Ham sæti í ensku úrvalsdeildinni með því að skora sigurmarkið í úrslitaleik umspilsins á Wembley í dag en markið hans kom þremur mínútum fyrir leikslok. Markið hans Vaz Te er 90 milljón punda virði ef allt er tekið með.

„Þetta snérist ekki um markið mitt heldur um samheldina í liðinu. Ég tel að við eigum skilið að vera í ensku úrvalsdeildinni," sagði Ricardo Vaz Te sem kom til West Ham frá Barnsley í janúar. Hann hefur skorað 12 mörk í 18 leikjum með West Ham í 1. deildinni.

„West Ham er úrvalsdeildarklúbbur og við ætlum að gera okkar besta á næsta tímabili. Ég byrjaði tímabilið með Barnsley en var svo lánsamur að fá nýtt tækifæri til að endurvekja ferilinn minn þegar ég komst til West Ham," sagði Vaz Te.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×