United vann Newcastle í sjö marka leik Stefán Árni Pálsson skrifar 26. desember 2012 14:30 Mynd/Nordic Photos/Getty
Manchester United vann ótrúlegan sigur, 4-3, á Newcastle á Old Trafford í dag. Heimamenn lentu í þrígang undir í leiknum. Gestirnir í Newcastle fengu draumabyrjun þegar þeir komust yfir eftir aðeins fjögurra mínútna leik þegar James Perch skoraði auðvelt mark. David de Gea varði boltann út í teiginn þar sem Perch var mættur og renndi boltanum í netið. Eftir markið réðu heimamenn lögum og lofum á vellinum og pressuðu stíft að marki Newcastle. Jöfnunarmarkið kom um miðjan hálfleikinn þegar Jonny Evans skoraði fínt mark eftir mikinn darraðardans innan vítateigs Newcastle. Evans var aftur á ferðinni fjórum mínútum síðar þegar hann skoraði annað mark, en því miður fyrir hann var það sjálfsmark. Staðan var því 2-1 í hálfleik. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn með látum og voru með boltann nánast linnulaust til að byrja með. Það var Frakkinn Patrice Evra sem jafnaði metin fyrir United þegar rúmlega hálftími var eftir af leiknum með fínu skoti fyrir utan vítateig Newcastle. Það leit allt út fyrir að að Manchester United myndi þarna taka yfirhöndina í leiknum en svo var alls ekki. Papiss Cissé kom Newcastle aftur yfir tíu mínútum síðar. Það tók reyndar heimamenn ekki langan tíma að jafna enn einu sinni þegar Robin van Persie skoraði þriðja mark United með fínu marki eftir mikið klafst inn í teig andstæðingsins. Gríðarleg spenna var í leiknum næstu mínútur og United sótti án afláts. Eftir að Hernandex hefði misnotað fjöldann allan af dauðafærum var komið að honum að tryggja Manchester United sigurinn í uppbótartíma með fínu marki. Sigur í sjö marka leik og Manchester United virðist einfaldlega alltaf koma til baka. Liðið hefur nú sjö stiga forskot á toppi deildarinnar með 46 stig.Staðan í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn Mest lesið Hver sigrar Puffin-hlaupið? Sport Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Íslenski boltinn Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Alex Zanardi látinn Sport Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Sport Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Íslenski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Fleiri fréttir Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Færði tíðindi af Salah á blaðamannafundi í morgun Mainoo áfram í Manchester næstu árin Parker hættur hjá Burnley | Tekur Gerrard við? Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Sjá meira