Liðsmenn United klúðrað sjö af síðustu tíu vítaspyrnum sínum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 4. nóvember 2012 16:45 Rooney skaut framhjá marki Arsenal í gær. Það var í fyrsta skipti sem United hitti ekki á markið af punktinum. Nordicphotos/Getty
Wayne Rooney brást bogalistin af vítapunktinum í 2-1 sigri Manchester United á Arsenal á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í gær. Uppskera United manna hefur verið rýr á vítapunktinum en sjö af síðustu tíu vítaspyrnum liðsins hafa farið forgörðum. Segja má að United menn hafi gefið tóninn fyrir það sem á eftir hefur fylgt í æfingaleik liðsins gegn Barcelona í Gautaborg 8. ágúst. Vítaspyrna Wayne Rooney í venjulegum leiktíma var varin af Victor Valdes og lauk leiknum með markalausu jafntefli. Gripið var til vítaspyrnukeppni þar sem Jose Pinto varði báðar spyrnur United manna sem Ashley Young og Nani tóku.Wayne Rooney bætti fyrir vítaspyrnuklúðrið í 4-3 sigri á Hannover sem var síðasti æfingaleikur liðsins fyrir tímabilið. Síðan hefur gengið skelfilega á punktinum en það hefur þó ekki orðið til þess að United menn hafi tapað stigum. Kæruleysislegt víti Robin van Persie gegn Southampton var varið en Hollendingurinn bætti fyrir það með þremur mörkum í dramatískum 3-2 deildasigri 2. september. Tveimur vikum síðar steig Javier Hernandez á punktinn í heimaleik gegn Wigan. Víti Mexíkómannsins var varið en United vann þægilegan 4-0 heimasigur. Strax í vikunni á eftir fékk Nani ábyrgðina á punktinum í meistaradeildarleik gegn Galatasaray. Spyrna Portúgalans var varin en mark Michael Carrick dugði United til 1-0 sigurs.Robin van Persie skoraði af punktinum í 2-1 útisigri gegn Liverpool í deildinni helgina á eftir og Ryan Giggs í 5-4 tapi United gegn Chelsea í deildabikarnum í síðustu viku. 30 prósent nýtingarhlutfall af vítapunktinum er ótrúlega lágt hjá einu stærsta félagsliði heims. Staðreyndin er hins vegar sú að ef frá eru taldar vítaspyrnurnar í æfingaleiknum gegn Barcelona hafa klúðrin ekki enn kostað United stig. United skoraði úr níu af ellefu vítaspyrnum sínum í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Vítin sem fóru forgörðum höfðu, líkt og í ár, engar afleiðingar í för með sér fyrir United. Liðið vann leikina. Vítaspyrnur Manchester United á tímabilinuUnited 0-0 Barcelona Varið frá Rooney Varið frá Young Varið frá NaniHannover 3-4 United Rooney skoraðiSouthampton 2-3 United Varið frá Van PersieUnited 4-0 Wigan Varið frá HernandezUnited 1-0 Galatasaray Varið frá NaniLiverpool 1-2 United Van Persie skoraðiChelsea 5-4 United Giggs skoraðiUnited 2-1 Arsenal Rooney skaut framhjá
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira