Leeds og Boro áfram - Madonna kom ekki til Di Canio í kvöld Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2012 21:53 Christian Benteke skoraði tvö mörk fyrir Aston Villa í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Þremur leikjum er lokið í enska deildabikarnum. Leeds, Middlesbrough og Aston Villa komust öll áfram í fjórðungsúrslit keppninnar eftir sigra í sínum leikjum. Middlesbrough, sem leikur í B-deildinni, hafði betur gegn grönnum sínum í úrvalsdeildarliði Sunderland með 1-0 sigri. Scott McDonald skoraði eina markið í fyrri hálfleik en leikurinn fór fram á Leikvangi ljóssins í Sunderland. Boro hefur verið á miklu skriði að undanförnu en þetta var fimmti sigur liðsins í röð. Sigurinn er einnig sá fyrsti sem Boro vinnur í síðustu sex leikjum sínum gegn Sunderland. Aston Villa hafði betur gegn C-deildarliðinu Swindon Town, 3-2, í spennandi leik. Christian Benteke skoraði sigurmark Aston Villa á lokamínútu venjulegs leiktíma. Villa komst í 2-0 forystu í leiknum með mörkum þeirra Benteke og Gabrial Agbonlahor. Miles Storey jafnaði svo metin fyrri Swindon með tveimur mörkum seint í leiknum en það dugði á endanum ekki til. Stjóri Swindon er hinn skrautlegi Paolo Di Canio sem sagði fyrir leik að sigur í kvöld myndi örugglega jafnast á við kvöldstund með Madonnu í rúminu. Þá vann Leeds öruggan 3-0 sigur á Southampton. Michael Tonge, El Hadji Diouf og Luciano Becchio skoruðu mörk Leeds í leiknum en þeir hvítklæddu höfðu mikla yfirburði á Elland Road í kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Sjá meira