Lygilegur 7-5 sigur hjá Arsenal Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. október 2012 22:29 Nordic Photos / Getty Images
Arsenal vann í kvöld sigur á Reading, 7-5, í einhverjum eftirminnilegasta leik síðari ára í enskri knattspyrnu. Reading komst í 4-0 forystu í leiknum en með sigrinum er Arsenal komið áfram í fjórðungsúrslit ensku deildabikarkeppninnar. Framlengja þurfti leikinn eftir að staðan var 4-4 að loknum venjulegum leiktíma. Arsenal komst yfir í framlengingunni með marki Marouane Chamakh en Pavel Pogrebnyak jafnaði metin fyrir Reading. Lokamínútur framlengingarinnar toppuðu svo allt. Theo Walcott kom Arsenal yfir, 6-5, á 130. mínútu og Chamakh skoraði svo sjöunda markið á 133. mínútu. Þá loksins var hægt að flauta leikinn af. Ballið byrjaði á 12. mínútu er Jason Roberts kom Reading yfir. Svo komu mörkin á færibandi - sjálfsmark Laurent Koscielny og mörk þeirra Mikele Leigertwood og Noel Hunt komu Reading í 4-0 forystu eftir aðeins 37 mínútur. Mátti þá sjá nokkra stuðningsmenn Arsenal yfirgefa áhorfendastúkuna enda útlitið ansi dökkt hjá gestunum. Theo Walcott náði að klóra í bakkann fyrir Arsenal í uppbótartíma fyrri hálfleiks en leikurinn breyttist mikið þegar að þeir Olivier Grioud og Thomas Eisfeld komu inn á sem varamenn á 62. mínútu. Arsenal tók öll völd á vellinum og Giroud minnkaði muninn í tvö mörk aðeins tveimur mínútum síðar. Laurent Koscielny skoraði þriðja mark Arsenal á 89. mínútu og Theo Walcott tryggði svo Arsenal framlenginguna þegar vel var liðið á uppbótartíma síðari hálfleiksins. Endurkoma Arsenal var ótrúleg sem og leikurinn allur. Það er rétt að árétta að Walcott skoraði þrennu í leiknum og Chamakh tvö mörk en sá síðarnefndi hefur lítið sem ekkert fengið að spila með Arsenal í upphafi tímabilsins.
Enski boltinn Mest lesið Sögulegur áfangi Örnu sem brýtur blað í íþróttasögu Íslendinga Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport Mætir með medalíu af ÓL í jarðarför föður síns Sport Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Enski boltinn „Ég er ekki kærastan“ Sport Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Enski boltinn Typpið í lagi en skórnir of stórir Sport Börsungar töpuðu og glutruðu um leið tækifæri til að komast á toppinn Fótbolti Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Enski boltinn „Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Sjá meira