Hazard: Undirbúningstímabilið var ekki eins erfitt og ég bjóst við Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2012 18:45 Eden Hazard fagnar hér með Fernando Torres. Mynd/Nordic Photos/Getty
Belginn Eden Hazard hefur slegið í gegn í fyrstu leikjunum með Chelsea en þessi stórskemmtilegi leikmaður hefur skorað eitt mörk og lagt upp sex önnur í fyrstu þremur leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea keypti Eden Hazard á 32 milljónir punda í sumar og það er ekki hægt að segja annað en þessi kaup ætla að borga sig ef marka má þessa frábæra byrjun. „Það er pressa á að vinna alla leiki hjá Chelsea og markmiðið er að vinna, vinna og vinna. Við eigum möguleika á því að vinna sjö titla á þessu tímabili," sagði Eden Hazard í viðtali við The Sun. „Við misstum af fyrsta titlinum á móti Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn en það væri frábært ef við náum að vinna tvo eða þrjá af þeim sex titlum sem eru eftir," sagði Hazard. „Ég hef aðlagast vel lífinu í London en auðvitað er það sérstakt að koma í lið með svona mörgum stjörnuleikmönnum. Ég hef hinsvegar farið á milli landa áður á ferlinum þegar ég fór frá Belgíu til Frakklands. Ég þekki því það vel að taka svona skref," sagði Hazard. „Leikurinn er hraðari hér og maður hefur minni tíma. Þetta eru meira krefjandi áskoranir og stuðningsmennirnir lifa fyrir fótboltann sem hljómar vel í mínum eyrum," sagði Hazard. „Hugmyndafræði Di Matteo snýst meira um að spila fótbolta en að einbeita sér að líkamlega þættinum. Við vinnum mikið með boltann og undirbúningstímabilið var ekki eins erfitt og ég bjóst við," sagði Hazard.
Mest lesið Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Brighton - Aston Villa | Algjört hrun í fyrsta leik Aston Villa Man. City - Bournemouth | Haaland mættur með nýja hárgreiðslu Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Sjá meira