Enski boltinn

Bellamy stóðst læknisskoðun hjá Cardiff

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Craig Bellamy mun í dag ganga í raðir Cardiff City sem fær hann án greiðslu frá Liverpool. Bellamy átti eitt ár eftir af samningi sínum við síðarnefnda liðið.

Þetta er staðhæft í enskum fjölmiðlum í dag en Bellamy mun hafa gengist undir læknisskoðun hjá Cardiff í morgun.

Hann lék með liðinu tímabilið 2010-11 sem lánsmaður frá Manchester City en hann er fæddur og uppalinn í Cardiff.

Bellamy verður þar með liðsfélagi þeirra Arons Einars Gunnarssonar og Heiðars Helgusonar en Cardiff leikur í ensku B-deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×