Fótbolti

23 angólskir stuðningsmenn létu lífið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. Nordicphotos/Getty
23 létust og 29 slösuðust þegar rúta með stuðningsmönnum angólska knattspyrnufélagsins Kabuscorp frá Luanda velti á laugardaginn. Reuters-fréttastofan greinir frá þessu.

Rútan var á leiðinni aftur til Luanda að loknum leik Kabuscorp í Libolo sem er um 600 kílómetra suðaustur af Luanda.

„Staðurinn þar sem að slysið átti sér stað er afar hættulegur auk þess sem ökumaðurinn var ungur og keyrði líklega of hratt," sagði Bento Kangamba forseti Kabuscorp í samtali við portúgalska ríkismiðilinn Lusa.

Dauðsföll af völdum umferðarslysa eru afar tíð í Angóla. Að sögn lögregluyfirvalda létust 3080 manns í umferðarslysum árið 2010. Aðeins malaría er algengari dánarvaldur í Afríkuþjóðinni.

Kabuscorp komst í heimsfréttirnar í janúar þegar Brasilíumaðurinn Rivaldo gekk til liðs við félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×