Fótbolti

Karlalandsliðið fellur um eitt sæti á FIFA-listanum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson eiga enn eftir að landa sínum fyrsta sigri með íslenska landsliðið.
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson eiga enn eftir að landa sínum fyrsta sigri með íslenska landsliðið. Mynd/Vilhelm
Styrkleikalisti FIFA var uppfærður í dag. Íslenska karlalandsliðið fellur um eitt sæti frá því í síðasta mánuði þótt liðið hafi ekki spilað neinn leik á tímabilinu.

Ísland fellur um eitt sæti, úr 129. sæti í sæti 130. Næstu þjóðir á undan Íslendingum eru Gambía (129), Tansanía (128), Líbanon (127) og Kenía (126).

Ísland fær tækifæri til þess að styrkja stöðu sína á listanum þann 15. ágúst. Þá mætir Ísland Færeyingum á Laugardalsvelli. Fá stig eru í boði fyrir sigur í æfingaleik og sérstaklega gegn lakari andstæðingi. Liðin í kringum Ísland eru þó ekki að hala inn stig í hverjum mánuði svo sigur gæti fleytt Íslandi upp um nokkur sæti á listanum.

Litlar breytingar eru á stöðu efstu liða á Íslandi. Spánn situr áfram í efsta sæti og Þjóðverjar þar á eftir. England skýst upp í 3. sæti listans á kostnað Úrúgvæja sem falla í 4. sæti.

Hástökkvarinn á listanum er landslið Líbanon (+17 sæti) en Víetnam rýkur niður um 26 sæti frá því á listanum sem birtur var í júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×