Enski boltinn

Thierry Henry farinn að tala um aðra endurkomu til Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thierry Henry.
Thierry Henry. Mynd/Nordic Photos/Getty
Thierry Henry átti eftirminnilega endurkomu í lið Arsenal á síðustu leiktíð og nú er Frakkinn farinn að tala um að snúa aftur til Lundúna á komandi tímabili. Henry ræddi möguleikann á því að snúa aftur til Arsenal í viðtali við Sky Sports.

„Ég gæti vel hugsað mér að snúa aftur til Englands og Arsenal. Það er enginn vafi á því," sagði Thierry Henry við Sky Sports. Henry skoraði tvö sigurmörk með Arsenal-liðinu á þeim stutta tíma sem hann lék með liðinu í fyrravetur.

„Ég var ekki búinn að plana það að koma til Arsenal á síðustu leiktíð og það kom aðeins til vegna þess að Gervinho og Chamakh voru að spila í Afríkukeppninni. Ég fékk að æfa með þeim og svo spurðu þeir mig hvort ég vildi spila með liðinu. Hver veit síðan hvað framtíð ber í skauti sér," sagði Henry.

Thierry Henry á eftir 18 mánuði af samningi sínum við bandaríska félagið New York Red Bulls en hann hefur þegar skorað 10 mörk í 14 leikjum með liðinu á 2012-tímabilinu. En hvað tekur við eftir það?

„Ég hef áhuga á því að gerast þjálfari en ég veit ekki hvaða hæfileika ég hef á hliðarlínunni. Ég vil samt snúa aftur til Arsenal," sagði Henry sem er orðinn 34 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×