Enski boltinn

Manchester City vann Arsenal á Ólympíuleikvanginum í Peking

Óskar Ófeigur Jónson skrifar
Yaya Touré skorar markið sitt í dag.
Yaya Touré skorar markið sitt í dag. Mynd/AFP
Englandsmeistarar Manchester City unnu Arsenal 2-0 í æfingaleik liðanna á Ólympíuleikvanginum í Peking í dag en bæði félögin eru á æfingaferðalagi í Asíu. Pablo Zabaleta og Yaya Touré skoruðu mörk City-liðsins í leiknum.

Manchester City stillti upp nokkuð sterku liði í leiknum en í lið Arsenal vantaði fleiri lykilmenn og svo náttúrulega Robin Van Persie sem fór ekki með Arsenal til Asíu.

Pablo Zabaleta kom Manchester City í 1-0 á 41. mínútu eftir undirbúning Yaya Touré og þremur mínútum síðar skoraði Yaya Touré sjálfur eftir sendingu frá Sergio Agüero. Yaya Touré átti frábæran leik í dag.

Byrjunarlið Man City: Pantilimon, Savic, Kompany, Kolo Toure, Kolarov, Zabalata, Biton, Yaya Toure, Razak, Aguero, Tevez.

Byrjunarlið Arsenal: Fabianski, Jenkinson, Bartley, Vermaelen, Gibbs, Song, Arteta, Diaby, Santos, Walcott, Gervinho. Alex Oxlade-Chamberlain, Francis Coquelin, Ignasi Miquel og Marouane Chamakh komu allir inn á í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×