Enska knattspyrnusambandið ákærir Terry | Neitar sök Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. júlí 2012 18:08 Nordicphotos/Getty
Enska knattspyrnusambandið hefur ákært John Terry, miðvörð Chelsea, fyrir orðbragð sitt í garð Antons Ferdinand, leikmanns QPR, í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni í október. Terry hefur neitað sök og óskað eftir fundi með aganefnd sambandsins. Terry var sýknaður að loknum fimm daga réttarhöldum fyrir sama hlut á dögunum. Enska knattspyrnusambandið ákvað að bíða með að halda áfram með málið þar til að réttarhöldunum loknum en hefur nú kært enska landsliðsmanninn. Terry er sakaður um að hafa haft kynþáttafordóma í frammi gagnvart Ferdinand en bar því fyrir sig að um kaldhæðnislegt svar við meintri ásökun Ferdinand um kynþáttafordóma hefði verið að ræða. Það sjónarhóll var samþykkt fyrir dóminum fyrir tveimur vikum þar sem dómarinn taldi nægjanlega vafa leika á um hvort orð hans ætti að túlka sem móðgandi. Þótt saksóknarinn í því máli hafi þurft að sanna að ummæli Terry hafi verið lítillækkandi án lítils vafa er sönnunarbyrðin öllu minni hjá aganefnd enska knattspyrnusambandsins þar sem hægt er að styðjast við líkindi. Terry var gefið til 3. ágúst til að svara ákærunni en gerði það skömmu eftir að hún var gefin út í dag. Þar neitar Terry sakargiftum og hefur óskað eftir að fá að skýra mál sitt. Verði Terry fundinn sekur verður hann væntanlega í banni í fyrstu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar. Úrúgvæinn Luis Suarez, leikmaður Liverpool, var dæmdur í átta leikja bann á síðustu leiktíð fyrir kynþáttafordóma í garð Patrice Evra hjá Manchester United.
Mest lesið Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Grét alla Reykjanesbrautina Körfubolti Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Fótbolti Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Enski boltinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Enski boltinn Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Enski boltinn „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Körfubolti Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Handbolti Sleit krossband, reif liðþófa og hlaut beinmar Íslenski boltinn Hugljúf kveðja Önnu: „Sé mann sem gaf þessu félagi af öllu hjarta“ Fótbolti Fleiri fréttir Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna Sjá meira