Bjargaði björgunarmanni sem fékk þyrluspaða í höfuðið 10. júlí 2012 21:30 Samskonar björgunarþyrla og var notuð við björgunaraðgerðina.
Herlækninum Jeremy Kilburn hefur líklega ekki grunað hvað væri í vændum þegar hann var á göngu í skóginum Shasta-Trinity í Bandaríkjunum á dögunum. Hundurinn hans gekk í veg fyrir hann með þeim afleiðingum að hann féll illa og fótbrotnaði. Þá voru góð ráð dýr, en samkvæmt AP fréttastofunni var kallað eftir þyrluaðstoð svo það væri hægt að flytja Kilburn á sjúkrahús. Og það stóð ekki á björgunarsveitarmönnunum því skömmu síðar kom þyrlan. Hún lenti skammt frá Kilburn, en aðstæður voru nokkuð slæmar fyrir þyrluna. Björgunarmaðurinn Tony Stanley ætlaði þá að klifra út úr faratækinu en þyrluspaðinn slóst þá í höfuð hans þannig hann féll harkalega til jarðar. Kilburn sá strax hvað gerðist og skreið fótbrotinn til Stanleys sem hlaut alvarlega höfuðáverka, eins og hægt er að geta sér til um, fái maður þyrluspaða í höfuðið. Kilburn, sem er vanur herlæknir hjá bandaríska flughernum tók sig til og kom túbu fyrir í hálsi Stanleys sem blæddi mikið. Þannig tókst Kilburn að halda öndunarveginum opnum, en Stanley var án meðvitundar þegar þetta átti sér stað. Kilburn reyndi líka að þrýsta á sárið á höfði Stanleys til þess að varna að hann missti meira blóð. Félagar Stanleys komu svo að og báru mennina í þyrluna. Kilburn segir að Stanley hafi verið með einhverja meðvitund í þyrlunni, meðal annars sett upp þumalinn þegar Kilburn spurði hvernig hann hefði það. Samkvæmt fréttavef AP er ekki vitað um ástand Stanleys eftir slysið, en Kilburn þurfti að fara í gifs vegna fótbrotsins. Kilburn segist raunar vera með samviskubit yfir þessu öllu saman, „þetta hefði aldrei gerst ef ég hefði ekki fótbrotnað," sagði hann í viðtali við AP fréttastofuna.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira