Enski boltinn

Kúveitar búnir að kaupa Nott. Forest

Nottingham Forest hefur eignast nýja eigendur en Al-Hasawi fjölskyldan frá Kúveit hefur formlega gengið frá kaupum á þessu fornfræga enska félagi.

Nigel Doughty setti félagið á sölu í október en hann féll frá fjórum mánuðum síðar sem flækti málin. Al Hasawi varð því að kaupa félagið frá dánarbúi hans.

Kúveitarnir ætla sér stóra hluti með félagið sem eitt sinn var Evrópumeistari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×