Hinn bandaríski markvörður Tottenham, Brad Friedel, hefur ekki miklar áhyggjur að þð verði erfitt að fylla skarð Luka Modric fari svo að hann yfirgefi Spurs.
Ansi margt bendir til þess að Modric fari frá Lundúnafélaginu áður en næsta tímabil byrjar og Real Madrid er sagður vera líklegur áfangastaður.
"Ef Modric fer þá veit ég að stjórnarformaðurinn verður tilbúinn með annan leikmann. Félagið hefur slíkan metnað að það leyfir ekki mönnum að fara nema það sé tilbúið með annan mann," sagði Friedel silkislakur.
Það er einnig að frétta af Spurs er á góðri leið með að landa framherjanum Emmanuel Adebayor sem var í láni hjá félaginu á síðasta tímabili.
Ef Modric fer kemur bara annar í sama gæðaflokki

Mest lesið


Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika
Íslenski boltinn

Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“
Íslenski boltinn

Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“
Íslenski boltinn

Ná samkomulagi um kaup á Alberti
Fótbolti


John Andrews og Björn reknir
Íslenski boltinn

Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds
Fótbolti


Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk
Körfubolti