Enski boltinn

Le Tissier blæs á frásögn Lundekvam | Veðjaði samt sjálfur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Matt Le Tissier
Matt Le Tissier Nordicphotos/Getty
Enski knattspyrnumaðurinn Matt Le Tissier, sem lék með Southampton í enska boltanum á árunum 1996-2008, segist aldrei hafa komið nálægt veðmálum í tengslum við fótbolta ef frá er talið eitt atvik.

„Ef frá er talið þetta eina atvik sem ég fjallaði um í ævisögu minni hef ég aldrei tekið þátt í veðmálabraski og skil ekkert í frásögnum Lundekvam," skrifaði Le Tissier á Twitter-síðu sína í morgun.

Norðmaðurinn Claus Lundekvam greindi frá því í gær að fyrirliðar í ensku úrvalsdeildinni hefðu tekið þátt í ýmiskonar svindli í enska boltanum.

„Um tíma gerðum við þetta nánast vikulega og þénuðum ansi vel á því. Við veðjuðum á flest það sem við gátum haft áhrif á," sagði Lundekvam um veðmálabrask í ensku úrvalsdeildinni.

Í ævisögu sinni sem kom út árið 2009 sagði Le Tissier frá því þegar hann reyndi að græða tíu þúsund pund í leik gegn Wimbledon í ensku úrvalsdeildinni.

Le Tissier hafði ásamt vinum sínum veðjað á að fyrsta innkastið myndi eiga sér stað áður en mínúta væri liðin af leiknum. Gróði Le Tissier hefði verið um 10 þúsund pund eða sem nemur um tveimur milljónum íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag. Áætlun hans fór út um þúfur.

„Vandamálið var að Neil Shipperley (samherji Le Tissier hjá Southampton) vissi ekki af veðmálinu og skallaði boltann áður en hann fór út af vellinum," skrifaði Le Tissier í ævisögu sinni en hann hafði þá spyrnt boltanum með það að markmiði að hann hafnaði utan vallar.

„Ég hljóp um sem mest ég mátti til þess að koma boltanum útaf. Við hefðum tapað miklum fjármunum hefði boltinn ekki farið útaf fyrstu 75 sekúndurnar," segir Le Tissier.

Boltinn hafnaði loks utan vallar eftir 75 sekúndur og segir Le Tissier að hann og veðmálafélagar hafi hvorki tapað né grætt á þeirri niðurstöðu.

Lundekvam lék með Southampton frá 1996-2008 og var því ekki orðinn leikmaður liðsins þegar atvikið átti sér stað.

Francis Benali, sem einnig bar fyrirliðabandið hjá Southampton um tíma, hafnar alfarið þeirri sögu sem Lundekvam hefur að segja.

Segir Benali að stemmningin í búningsklefum ensku liðanna sé þess eðlis að slíkt hefði ekki farið framhjá neinum. Hann komi alveg af fjöllum og er ósáttur við að að hann sé sakaður um slíkt. Það er haft eftir honum í viðtali við BBC.

Benali bendir jafnframt á vandamál Lundekvam við áfengi og eiturlyf en hann var árið 2010 sektaður fyrir líkamsárás á Englandi.


Tengdar fréttir

Fyrirliðar í enska boltanum svindluðu

Norðmaðurinn Claus Lundekvam, fyrrum fyrirliði Southampton, hefur viðurkennt að hafa tekið þátt í ýmis konar svindli í enska boltanum sem hafi skaffað honum háar fjárhæðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×