Björn Bergmann: Draumur orðinn að veruleika Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júlí 2012 16:27 Mynd / Heimasíða Wolves
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson er formlega genginn í raðir Wolves í ensku Championship-deildinni í knattspyrnu. Björn er í viðtali á heimasíðu félagsins en allt viðtalið má sjá hér. „Að flytja til Englands og ganga til liðs við Wolves má líkja við draum sem er að verða að veruleika," segir Björn Bergmann við Englendinganna og má greina að hann hafi litið á Noreg sem stökkpall í meira spennandi verkefni. „Ég yfirgaf Ísland fyrir þremur árum til þess að spila í Noregi og síðan þá hef ég alltaf viljað taka skrefið til stærra félags," segir Björn Bergmann. „Nú, þremur árum síðar er draumurinn orðinn að veruleika. Það er gott að það sé búið að ganga frá þessu svo ég geti haldið til Írlands og kynnst öllum," segir Björn Bergmann en liðsfélagar hans eru í æfingaferð á Írlandi. Hjá Wolves hittir Björn Bergmann fyrir félaga sinn úr íslenska landsliðinu Eggert Gunnþór Jónsson. „Ég þekki Eggert úr landsliðinu og hann er frábær náungi. Það er gott fyrir mig að hann sé hér og ég hlakka til að hitta hann," segir Björn Bergmann. Um mánuður er síðan gengið var frá kaupum Wolves á Birni Bergmann frá Lilleström. Forráðamenn norska félagsins kröfðust þess engu að síður að Björn Bergmann spilaði með liðinu fram í miðjan júlí. „Lilleström má líkja við fjölskyldu mína og ég vildi hjálpa þeim eins mikið og ég gat," segir Björn Bergmann sem spilaði þrjá leiki með norska liðinu eftir að gengið var frá kaupunum. Um líkamegt atgervi sitt og form segir Skagamaðurinn: „Ég hef verið að spila knattspyrnu svo ég er í góðu formi og sterkur en gæðin eru örugglega töluvert meiri hér."
Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Sjá meira