Enski boltinn

Arsenal hafnaði tilboði Juventus í Van Persie

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar fullyrða að Arsenal hafi hafnað tilboði Ítalíumeistara Juventus í hollenska sóknarmanninn Robin van Persie.

Gazzetta dello Sport fullyrðir að Juventus hafi boðið átta milljónir punda í van Persie sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal.

Van Persie hefur verið tregur til að semja við Arsenal aftur og hefur einnig verið sterklega orðaður við bæði Manchester City og Paris St. Germain.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×