Enski boltinn

Owen farinn frá United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Manchester United hefur tilkynnt nöfn fjögurra leikmanna sem hafa yfirgefið félagið. Meðal þeirra eru Michael Owen og Tomasz Kuszczak.

Owen greindi frá því í vor að hann myndi ekki fá nýjan samning hjá United og er enn óljóst hvert hann fer. Hann spilaði síðast í nóvember en ætlar þó ekki að leggja skóna á hilluna og hefur hann verið orðaðu við Stoke.

Owen kom til United árið 2009 og hefur áður leikið með Liverpool, Real Madrid og Newcastle.

Kuszczak var hjá United í fimm ár og hefur þegar gengið til liðs við B-deildarliðið Brighton.

Tveir aðrir markverðir, Liam Jacob og Joe Coll, eru einnig á leið frá félaginu en báðir eru átján ára gamlir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×