Enski boltinn

Di Matteo: Torres mun ekki eiga öruggt byrjunarliðssæti

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Fernando Torres varð markakóngur á Evrópumótinu í sumar.
Fernando Torres varð markakóngur á Evrópumótinu í sumar.
Roberto Di Matteo, þjálfari Chelsea, hefur varað Fernando Torres við að hann geti ekki gengið að byrjunarliðssætinu sem vísu á næsta tímabili. Mikið hefur verið talað um Torres sem aðal framherja liðsins í kjölfar brotthvarfs Didier Drogba.

Di Matteo er þó greinilega staðráðinn í því að halda Torres á tánum eftir velgengni hans á Evrópumótinu í sumar.

„Við erum með þrjá framherja í hópnum eins og er. Ég hef ekki ennþá ákveðið mig hvern ég mun aðallega nota. Þeir þurfa allir að sanna sig og berjast fyrir sætinu," sagði Di Matteo.

„Ég býst við Torres í góðu skapi og tilbúnum í slaginn eftir sigurinn í Evrópukeppninni. Að verða markakóngur í keppninni hlýtur að gefa honum aukið sjálfstraust og ég tel að hann sé einungis á uppleið. Ég held að hann verði frábær fyrir okkur á næsta tímabili," sagði Di Matteo að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×