Enski boltinn

Wenger: Van Persie er ekki á förum

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur ítrekað að framherjinn Robin van Persie sé ekki á förum frá Arsenal í sumar. Hann sér heldur enga ástæðu til þess af hverju leikmaðurinn ætti að vilja fara til Juventus.

Van Persie á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og ef Hollendingurinn vill ekki framlengja verður Arsenal að selja hann í sumar ef félagið ætlar að fá einhvern pening fyrir hann.

"Hann verður áfram hjá Arsenal. Alvöru leikmaður í toppliði í ensku úrvalsdeildinni hefur enga ástæðu til þess að fara til Ítalíu," sagði Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×