Enski boltinn

Apamaðurinn í Liverpool dæmdur í fjögurra ára bann

Gannon leikur ekki apa í stúkunni á Anfield næstu árin.
Gannon leikur ekki apa í stúkunni á Anfield næstu árin.
Stuðningsmaður Liverpool hefur verið dæmdur í fjögurra ára bann frá knattspyrnuvöllum á Englandi en hann var með kynþáttaníð í garð Patrice Evra og stuðningsmanna Man. Utd.

Maðurinn er 58 ára gamall og heitir Phillip Gannon. Til hans sást í sjónvarpi þar sem hann var með apahreyfingar í stúkunni.

Það atvik var í fyrsta leik félaganna eftir að Luis Suarez, leikmaður Liverpool, hafði verið dæmdur í átta leikja bann fyrir kynþáttaníð í garð Evra.

Gannon fær ekki heldur að mæta á landsleiki Englands og má ekki vera í miðbæ Liverpool fjórum tímum fyrir og eftir leiki liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×